Sterkt mót

Miðað við vinsældir BJJ á Hawaii er ljóst að opna meistaramótið þar er sterkt en Gunnar segist hvergi banginn og þetta sé fínt tækifæri til að fá reynslu af því að keppa við suma af þeim bestu. Hann þurfti hvort sem er að fara til Honolulu frá Hilo á Hawaii og því tilvalið að fara af stað degi fyrr og taka þátt í mótinu.Cool Gunnar flýgur síðan heim á leið daginn eftir mótið og er væntanlegur heim til Íslands 4. júní.


mbl.is Keppir í jiu jitsu á Hawaii
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veistu einhver nöfn á keppendum í þessu móti Halli ?

Kristinn Jóhannsson (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 22:17

2 Smámynd: Halli Nelson

Nei, ekki hugmynd. En mér skilst á þeim úti að þarna keppi iðulega afar sterkir einstaklingar. Veit að það eru nokkrir frá gyminu hjá BJ að fara að keppa þarna og eflaust víðar að, bæði frá USA og annars staðar.

Halli Nelson, 31.5.2008 kl. 22:44

3 identicon

Þetta er spennandi og miðað við þær fréttir sem maður heyrir af stráknum þá virðist hann vera að standa sig rosalega vel. Bara það að vera í félagsskap með BJ Penn og Uriah Faber segir ansi mikið. En er hann ekki líklegur kandídat í The Ultimate Fighter ? Hefur hann eitthvað reynt við það ?  Hann gæti orðið næsti Magni okkar íslendinga ef hann kæmist þar inn .

Kristinn Jóhannsson (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 11:29

4 identicon

Frábært hjá Gunnari að hætta sér í þetta mót. En af hverju setur Mogginn þetta undir fólk en ekki íþróttir? Það skiptir sennilega litlu en er samt svolítið dæmigert fyrir íþróttafréttamennsku á Íslandi. Ef það er ekki bolti í því þá er það varla íþrótt. Stafar af því að íþróttafréttamennirnir koma allir úr sömu áttinni og skrifa bara um það sem þeir hafa sjálfir áhuga á. Lítil fréttamennska í því satt best að segja. En menn munu ekki geta horft framhjá því að MMA er að sigra heim íþróttanna. En ég hef heyrt þetta sama um opna meistaramótið á Hawaii í BJJ. Þá á ég við að þarna keppi margir mjög góðir og mótið sé með þeim sterkari í BJJ. Vonandi gengur Gunnari vel. Það væri saga til næsta bæjar ef hann hafnaði í efri sætunum þarna! Og ég myndi alveg trúa honum til að koma á óvart og gera það. Drengurinn er með ólíkindum hæfileikaríkur íþróttamaður.

Bjarni (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 14:41

5 identicon

Ég hef verið að horfa á öll myndböndin hans og lesið mig eilítið til um hans feril á netinu eftir að ég sá þessa frétt. Ótrúlegt þykir mér hversu mikla hæfileika hann hefur miðað við ungan aldur. Hann á klárlega eftir að ná langt í þessari íþrótt ef hann heldur áfram á sömu braut og aflar sér meiri reynslu í bransanum. Persónulega finnst mér að fjölmiðlar á Íslandi (áhersla er lögð á að við erum bara rétt rúmlega 300.000 manns) ættu að sýna drengnum og íþróttinni meiri áhuga heldur en raunin er, þar sem þetta er klárlega með erfiðari íþróttagreinum sem fyrirfinnast.

Einhverjar fréttir um hvernig honum gekk á mótinu í dag Halli?

Áhugasamur (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 23:21

6 Smámynd: Halli Nelson

Takk fyrir þetta. Já, eins og ég hef þegar sett inn þá gerði Gunnar sé lítið fyrir og vann til gullverðlauna á mótinu.

Halli Nelson, 2.6.2008 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Combat - bardagaíþróttir

Umfjöllun um bardagaíþróttir (bardagalistir), bæði á Íslandi og erlendis.

Höfundur

Halli Nelson
Halli Nelson

Nýjustu myndir

  • Gunnar Nelson vs Vinicius Magalhães
  • Þráinn Kolbeinsson, Gunnar Nelson og Sighvatur Helgason
  • Gunnar Nelson after the win over Danny Mitchell
  • Gunnar Nelson vs Danny Mitchell
  • Gunnar Nelson vs Danny Mitchell

RSS-straumar

MMA fréttir

Mjölnir

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Fighters Only Magazine

Stærsta tímarit í Evrópu um MMA. Kemur út mánaðarlega.
  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 193438

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband