11.5.2007 | 21:29
Tveir Íslendingar í kepptu í pro MMA í Danmörku
Tveir Íslendingar, þeir Gunnar Nelson (18 ára, og já sonur þess er þetta ritar) og Ingþór Valdimarsson (23 ára), tóku þátt í móti í bardagaíþróttum í Kaupmannahöfn sl. laugardag, 5. maí. Mótið heitir Adrenaline Sports en þar er keppt í ýmsum svokölluðum full contact bardagaíþróttum. Hægt að að kaupa myndbönd af bardögunum á vefsíðu keppninnar.
Þeir Gunnar og Ingþór kepptu þar í svokölluðu pro MMA (mixed martial arts) eða blönduðum bardagalistum. Þetta var fyrsti MMA bardagi þeirra beggja og raunar fyrsti full contact bardagi Gunnars en Ingþór hefur áður keppt í full contact standup við góðan orðstír. MMA er sú bardagaíþrótt sem er í mestri sókn, bæði í vestur- og austurheimi og er farin að draga að sér fleiri áhorfendur í USA en atvinnumanna hnefaleikar. ÍþróttagreinIN er afar erfið og harðger en hún er sambland af standaði frjálsri viðureign, standandi glímu og gólfglímu. Þeir Gunnar og Ingþór urðu þarna fyrstir Íslendinga til að keppa í þessari erfiðu íþróttagrein á Norðurlöndum og reyndar hefur aðeins einn annar Íslendingur keppt í pro MMA sem er Árni Ísaksson en hann hefur keppt bæði á Írlandi og Bretlandi.
Gunnar mætti hinum afar sterka John Olesen en Martin Kampmann, keppandi í UFC, sterkustu MMA keppni í heiminum í dag, hafði aðspurður nefnt hann sem efnilegasta MMA mann Dana í dag. Olesen er fjórum árum eldri en Gunnar og en þetta var sjötti bardagi Olesen.
Bardagi Gunnars var fyrr en Ingþórs. Gunnar stóð sig með afbrigðum vel og gaf ekkert eftir heldur hafði betur ef eitthvað var. Bardaginn fór í dómaraúrskurð og var úrskurðaður jafntefli af dönsku dómurunum. Sumir voru ósáttir við þann úrskurð fyrir Gunnars hönd og sögðu hann hafa átt að vinna bardagann en sjálfur sagðist Gunnar vera sáttur með niðurstöðuna og vildi ekki telja hana ósanngjarna. Það hefði sennilega verið ósanngjarnt að dæma öðrum hvorum keppandanum ósigur eftir svona harðan og jafnan bardaga, sagði Gunnar.
Í fyrstu lotu var Gunnar mjög varkár og Daninn hafði þar betur ef eitthvað var. Í annarri lotu byrjaði Gunnar líka varlega en sótti í sig veðrið þegar líða tók á lotuna og tók völdin í hringnum seinni hluta hennar. Hann var ótrúlega óheppinn að klára ekki bardagann í lok þessarar lotu þegar hann náði andstæðingi sínum í svokallaðan Kimura armlás en bjallan bjargaði Dananum sem var við það að gefast upp. Hefði þetta gerst fyrr í lotunni hefði Gunnar unnið bardagann þarna því Daninn átti enga möguleika út úr þessum lás og bara tímaspursmál hvenær hann gæfist upp eða dómarinn stoppaði bardagann. Hér hefðu sennilega 5-10 sekúndur í viðbót ráðið úrslitum. Í þriðju lotu hafði Gunnar talsverða yfirburði og sú lota en náði þó ekki að þvinga andstæðing sinn til uppgjafar.
Ingþór Valdimarsson mætti danska Írananum Ayub Tashkilot sem er wrestler að upplagi. En Ingþór var afar óheppinn því hann fékk skurð á augabrún snemma í fyrstu lotu (sennilega hafa þeir slegið höfðunum óvart saman) og læknirinn á staðnum neitaði honum um áframhaldandi þátttöku. Þetta var auðvitað afar svekkjandi fyrir Ingþór en hann mun hins vegar án efa koma þeim mun ákveðnari til leiks næst.
Alls var 31 bardagi á mótinu en bardagi Ingþórs mun vera sá eini þar sem einhver meiðsli urðu og sem betur fer voru þau þó ekki alvarleg. Margir töldu hins vegar að bardagi Gunnars Nelson og John Olesen hefði verið besti bardagi kvöldsins og einn af bestu MMA mönnum Dana sagði eftir bardagann að hann væri sá besti sem hann hefði séð í langan tíma. Danir hefðu talið að þetta auðveldur sigur fyrir efnilegasta MMA mann Dana en raunin hefði heldur betur verið önnur og menn voru sammála um að Gunnar hefði komið mjög á óvart og væri mikið efni, 18 ára í sínum fyrsta MMA bardaga og það Pro bardaga gegn miklu reyndari andstæðingi sem þar að auki væri fjórum árum eldri. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvort áframhald verði á þessu hjá þeim félögum og ef til vill fleiri Íslendingum í þessari erfiðu en sívaxandi íþróttagrein.
Gunnar sviptir andstæðingi sínum á loft í þriðju lotu
Photo: mbn on Flickr
Um bloggið
Combat - bardagaíþróttir
Tenglar
MMA vefir
Áhugaverðar síður um bardagaíþróttir
- Gunnar Nelson in English Gunnar's Nelson official website
- Fighters Only Magazine Stærsta MMA tímarrit í Evrópu
- UFC Ultimate Fighting Championship
- MMA Weekly Fréttasíða um MMA
- Sherdog MMA gagnagrunnur, fréttir o.fl.
- MMA Universe MMA gagnagrunnur, fréttir o.fl.
- Mjölnir - SBG Iceland Bardagaíþróttafélagið Mjölnir
- SBG Ireland Gymið hjá John Kavanagh
- Renzo Gracie Renzo Gracie Academy
- Gracie Magazine Vinsælasta BJJ tímarit í heimi
RSS-straumar
MMA fréttir
Mjölnir
- Augnablik - sæki gögn...
Fighters Only Magazine
- Augnablik - sæki gögn...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.