16.5.2007 | 22:54
Samningur UFC og HBO í lausu lofti
Sjónvarpssamningur milli UFC og HBO hefur lengi verið á óskalista margra MMA aðdáenda en stöðin ein af þeim stærstu í heimi. Nokkrum sinnum hefur virst sem samningur þess efnis væri í höfn en fréttir um að hann lægi á borðinu hins vegar ekki fyrr verið komnar í loftið en þær hafa verið skotnar niður aftur.
Nýlega fóru þessar sögusagnir á kreik enn á ný og nú sterkari en oft áður. Hins vegar bárust jafnskjótt fregnir af því að stjórnarformaður HBO og framkvæmdastjóri, Chris Albrecht, hafi verið sagt upp störfum en Albrecht var talinn einn mesti stuðningsmaður samningsins innan fyrirtækisins. Þetta er talið geta komið í veg fyrir samninginn enn eina ferðina og í nýlegu viðtali tjáir Dana White, forseti UFC, sig um málið. Þetta er óheppilegt,... segir hann en það var enginn samningur orðinn að veruleika hvort sem er. Við erum enn að kasta þessu okkar á milli.
Forstjóri íþróttasviðs HBO, Ross Greenburg, hefur lengi verið andsnúinn því að semja um útsendingar frá MMA viðburðum, en Greenburg er mikil hnefaleikaaðdáandi. Albrecht tók hins vegar ákvörðun þvert á óskir Greenburg og mun hreinlega hafa skipað honum að ganga frá samningnum um MMA útsendingar. En nú er Albrecht horfinn á braut og margir telja lítinn vafa á því að þar með muni sjónvarpssamningurinn fara sömu leið.
Það vakti talsverða athygli, eftir boxbardaga Floyd Mayweather yngri og Oscar De La Hoya um daginn, að HBO boxlýsandinn Jim Lampley sá ástæðu til að skjóta á MMA í orðum sínum með því að halda því fram að hugrekki eins og boxararnir hefðu sýnt í hringnum myndu menn aldrei sjá í MMA. Það er löngu vitað að Lampley er af gamla skólanum, hefur ekkert vit á MMA og finnst vinsældir þess ógna boxinu sem hann telur sig sérfræðing í. En það eitt að Lampley skyldi finna þörf hjá sér til að dissa MMA í beinni útsendingu sýnir best hversu rísandi sportið er og að vinsældir þess eru farnar að hrella útsérgengna lýsendur eins og Lampley. Það vakti nefnilega ekki síður athygli að hinn HBO boxlýsandinn, Max Kellerman, tók þegar upp hanskann fyrir MMA og sagði við Lampley að hann væri algjörlega ósammála honum. Kellerman er einn af upprennandi stjörnum HBO og þykir efnilegasti boxlýsandi þeirra í dag en hann hóf að lýsa hjá stöðinni árið 2005. Margir muna kannski eftir honum sem boxlýsandanum í hringnum í nýjustu Rocky myndinni, Rocky Balboa. Þess má geta að Kellerman er fæddur árið 1973 en Lampley árið 1949.
Aðdáendur MMA og UFC þurfa þó langt frá því að örvænta því eins og menn vita er MMA sent út á kapalstöðinni Spike TV og er heitasta efnið þar í dag. Það mun því sennilega ekki vera neinn skortur á sjónvarpsstöðvum sem munu sækjast eftir þessu vinsæla efni íþróttar sem fer stöðugt vaxandi. Og það er alls óvíst að aðrir stjórnarmenn HBO munu til lengdar sætta sig við að sjónvarpsstöðin verði af miklum tekjumöguleikum vegna þrjósku eins yfirmanns hennar.
Um bloggið
Combat - bardagaíþróttir
Tenglar
MMA vefir
Áhugaverðar síður um bardagaíþróttir
- Gunnar Nelson in English Gunnar's Nelson official website
- Fighters Only Magazine Stærsta MMA tímarrit í Evrópu
- UFC Ultimate Fighting Championship
- MMA Weekly Fréttasíða um MMA
- Sherdog MMA gagnagrunnur, fréttir o.fl.
- MMA Universe MMA gagnagrunnur, fréttir o.fl.
- Mjölnir - SBG Iceland Bardagaíþróttafélagið Mjölnir
- SBG Ireland Gymið hjá John Kavanagh
- Renzo Gracie Renzo Gracie Academy
- Gracie Magazine Vinsælasta BJJ tímarit í heimi
RSS-straumar
MMA fréttir
Mjölnir
- Augnablik - sæki gögn...
Fighters Only Magazine
- Augnablik - sæki gögn...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.