23.12.2009 | 15:43
Gunnar í viðtali á MMA Spot
Bardagaíþróttavefurinn MMA Spot var að birta ítarlegt viðtal við Gunnar. Í viðtalinu er Gunnar m.a. spurður út í óvæntan sigur sinn á hinum goðsagnakennda Jeff Monson á ADCC 2009 í september og hvort hann hyggist keppa í MMA á næstunni. Aðspurður segir Gunnar það hafa verið auðvelt og eðlilegt val að færa sig yfir í MMA og BJJ úr karate. Hann hafi átt góð ár í karate en eftir að hann kynntist MMA og BJJ hafi honum fundist karate of takmarkað enda hafi hann þegar verið orðinn hugfanginn af bardagalistinni og því hafi verið eðlilegt að fara yfir í sannara og heiðarlegra form þeirrar listar. Gunnar segist stefna á stóru keppnirnar í MMA í framtíðinni en hann vildi ekki skuldbinda sig þeim um of á þessum tímapunkti, sér liggi ekkert á, margt sé að læra og hann vilji láta hlutina gerast með sínum eðlilega hraða. Þá kveðst Gunnar ætla að reyna að æfa eins mikið hér heima og hann geti, enda líði honum hvergi betur en á Íslandi, með fjölskyldu og vinum og hjá Mjölni. Best þó í sveitinni hjá afa sínum og ömmu á Ólafsfirði
Um bloggið
Combat - bardagaíþróttir
Tenglar
MMA vefir
Áhugaverðar síður um bardagaíþróttir
- Gunnar Nelson in English Gunnar's Nelson official website
- Fighters Only Magazine Stærsta MMA tímarrit í Evrópu
- UFC Ultimate Fighting Championship
- MMA Weekly Fréttasíða um MMA
- Sherdog MMA gagnagrunnur, fréttir o.fl.
- MMA Universe MMA gagnagrunnur, fréttir o.fl.
- Mjölnir - SBG Iceland Bardagaíþróttafélagið Mjölnir
- SBG Ireland Gymið hjá John Kavanagh
- Renzo Gracie Renzo Gracie Academy
- Gracie Magazine Vinsælasta BJJ tímarit í heimi
RSS-straumar
MMA fréttir
Mjölnir
- Augnablik - sæki gögn...
Fighters Only Magazine
- Augnablik - sæki gögn...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.