Gunnar mætir hollenskum reynslubolta í Cage of Truth

Gunnar NelsonJæja, nú reynir heldur betur á okkar mann því Gunni mætir Hollendingnum Niek Tromp á laugardaginn á Cage of Truth: Battle on the Bay í Dublin. Þetta verður aðalbardagi kvöldsins en Pólverji sem átti að mæta Niek Tromp er meiddur og Gunna var boðinn bardaginn í hans stað. Að Gunnari skuli hafa verið boðið að keppa í aðalbardaga (main event) sýnir að frábær frammistaða hans í tveimur síðustu keppnum, þar sem hann sigraði andstæðinga sína í 1. lotu, hefur vakið verðskuldaða athygli.

Bardaginn við Niek Tromp verður hins vegar vafalítið erfiðasti bardagi Gunnars hingað til því auk þess að vera nokkuð þyngri en Gunnar er Hollendingurinn svo sannarlega enginn nýgræðingur í íþróttinni en Tromp hefur barist a.m.k. 17 MMA bardaga á ferlinum og hefur sigrað 15 þeirra. Hann hefur ekki tapað í tvö og hálft ár og unnið síðustu 12 bardaga í röð og a.m.k. 8 þeirra í fyrstu lotu. Töpin hans koma bæði á dómaraúrskurði, í júní 2003 og maí 2005. Allir sigrar hans nema einn eru á submission, flestir á armbar en einnig a.m.k. þrjú Triangle Chocke, tvö Guillotine Choke, Ankle Lock, Kimura, og önnur Choke. Einhverra hluta vegna virðist erfitt að nálgast video með Tromp en hér má sjá highlight video af Willy Ni sem Tromp sigraði nú síðast á þessu ári á armbar í 1. lotu. Tromp er reyndar að fara að berjast um Evrópumeistaratitil Shooto á móti í Belgíu 15. desember næstkomandi.

Gunnar dvelst nú við æfingar í Manchester á Englandi en bardaginn við Niek Tromp fer eins á áður segir fram í Dublin á Írlandi nk. laugardagskvöld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Combat - bardagaíþróttir

Umfjöllun um bardagaíþróttir (bardagalistir), bæði á Íslandi og erlendis.

Höfundur

Halli Nelson
Halli Nelson

Nýjustu myndir

  • Gunnar Nelson vs Vinicius Magalhães
  • Þráinn Kolbeinsson, Gunnar Nelson og Sighvatur Helgason
  • Gunnar Nelson after the win over Danny Mitchell
  • Gunnar Nelson vs Danny Mitchell
  • Gunnar Nelson vs Danny Mitchell

RSS-straumar

MMA fréttir

Mjölnir

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Fighters Only Magazine

Stærsta tímarit í Evrópu um MMA. Kemur út mánaðarlega.
  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband