Gunnar gjörsigraði Niek Tromp!

Magnaðar fréttir frá Dublin í gærkvöldi því Gunnar gerði sér lítið fyrir og gjörsigraði Hollendinginn Niek Tromp í á 1. lotu (1mín 50sek) í Cage of Truth: Battle on the Bay. Þetta var aðalbardagi kvöldsins, eins og fram hefur komið, en Hollendingurinn hafði ekki tapað bardaga í tvö og hálft ár og er að fara að berjast um Evrópumeistaratitil Shooto 15. desember!

Gunnar skellti andstæðingi sínum í gólfið strax í byrjun lotunnar, náði þar „mount“, og lét höggunum rigna yfir Tromp. Að sögn þeirra sem á horfðu virtist Hollendingurinn detta út rétt augnablik undan höggum Gunnars en „tapp-aði“ síðan til merkis um uppgjöf. Karl Tanswell sem var í horninu hjá Gunna í gærkvöldi sagði mér að stemmingin í íþróttahöllinni í Dublin hefði verið frábær og Gunnar hefði enn og aftur sýnt hversu gríðarlega öflugur MMA maður hann er orðinn.

Það sem vakti ekki síst athygli er að Niek Tromp er submission specialist, sérfræðingur í gólfglímu, og hafði unnið 14 af 15 sigrum sínum á ferlinum á submission, lang flesta í fyrstu lotu en einu tvö töpin hans á ferlinum koma til eftir dómaraúrskurð. Hann hafði því aldrei áður verið sleginn út eða þurft að gefast upp í bardaga. Gunnar hefur eflaust komið Hollendingnum vel á óvart með því að fara beint með bardagann í gólfið þar sem Tromp er bestur en hann hefur sennilega ekki gert sér grein fyrir því að Gunnar er einfaldlega bestur þar líka. Enda sýndi Gunnar það með því að taka strax öll völd í gólfinu og knýja Tromp til uppgjafar eins og áður segir. Gunnar hafði reyndar sagt fyrir bardagann að ætlaði sér að "aftrompa" Tromp og hann stóð svo sannarlega við það. Yfirtrompaði hann með stæl! Smile

Glæsilegur sigur hjá okkar manni og gaman að lesa lýsingar af þessu á netinu. Einn af þeim sem var þarna til að vera í horninu hjá öðrum keppanda lýsti á þessa leið: „Gunnar showed some incredible GnP ability. It was like watching a shotgun reloading each time- click click-boom, I've never been on bottom getting hit that accurately... and I have no desire to do so in the future!“

Hér að neðan eru myndir frá bardaganum og myndband.

Myndband af bardaganum á YouTube

Gunnar fær fyrirmæli frá dómaranum fyrir bardagann
Gunnar fær fyrirmæli frá dómaranum fyrir bardagann

Go to your corners and come out fighting!
"Go to your corners and come out fighting!"

Gunnar sviptir Niek Tromp á loft
Gunnar sviptir Niek Tromp á loft

Gunnar í guardinu hjá Niek
Gunnar búinn að skella Niek í gólfið og er í guardinu hjá honum

Gunnar fer framhjá guardi Niek Tromp
Gunnar fer framhjá guardi Niek Tromp

Gunnar búinn að mounta Niek
Gunnar búinn að mounta Niek

Gunnar byrjar að hamra á Niek
Gunnar byrjar að hamra á Niek

Gunnar með algjöra yfirburði á gólfinu
Gunnar með algjöra yfirburði á gólfinu

Niek kemst hvergi og Gunnar heldur áfram að láta Hollendinginn finna til tevatnsins
Niek kemst hvergi og Gunnar heldur áfram að láta Hollendinginn finna til tevatnsins

Dómarinn farinn að hugsa um að stöðva bardagann
Dómarinn farinn að hugsa um að stöðva bardagann

Niek Tromp í slæmum málum og endirinn óumflýjanlegur
Niek Tromp í slæmum málum og endirinn óumflýjanlegur

Tromp við það gefast upp
Tromp við það gefast upp

Gunnar stendur á fætur eftir að Niek Tromp gafst upp og dómarinn stöðvaði bardagann
Gunnar stendur á fætur eftir að Niek Tromp gafst upp og dómarinn stöðvaði bardagann

Sigur hjá okkar manni
Glæsilegur og öruggur sigur hjá okkar manni

Niek Tromp sennilega að spá í hver þetta sé eiginlega sem rústaði honum
Niek Tromp sennilega að spá í hver þetta sé eiginlega sem rústaði honum

Niek játar sig sigraðan
Niek játar sig sigraðan

Gunnar og Niek faðmast að loknum bardaganum
Gunnar og Niek faðmast að loknum bardaganum

Gunnar með sigurskjöldinn á milli þeirra John Kavanagh og Karl Tanswell
Gunnar með sigurskjöldinn á milli þeirra John Kavanagh og Karl Tanswell


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Combat - bardagaíþróttir

Umfjöllun um bardagaíþróttir (bardagalistir), bæði á Íslandi og erlendis.

Höfundur

Halli Nelson
Halli Nelson

Nýjustu myndir

  • Gunnar Nelson vs Vinicius Magalhães
  • Þráinn Kolbeinsson, Gunnar Nelson og Sighvatur Helgason
  • Gunnar Nelson after the win over Danny Mitchell
  • Gunnar Nelson vs Danny Mitchell
  • Gunnar Nelson vs Danny Mitchell

RSS-straumar

MMA fréttir

Mjölnir

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Fighters Only Magazine

Stærsta tímarit í Evrópu um MMA. Kemur út mánaðarlega.
  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband